veröld karenar
Litli prinsinn minn
11.12.2008 13:26:31 / karen

það eru alveg að koma jól!

já já jólin nálgast! og ég á eftir að kaupa of margar jólagjafir....verð bara stressuð á að hugsa um það!! En þýðir ekkert annað en bara að drífa í þessu.
Allt fínt að frétta. Er að vinna bara á leikskólanum til kl.13:00 og það er voða næs.
Kristján Breki stækkar alveg rosalega hratt og er hann að verða stóri bróðir í maí:)
Hann er farinn að tala alveg helling og er komin á brandara aldurinn,þar sem ég á mjög oft erfitt með að halda andlitinu þegar það á að gera það:)

Annars gengur lífið bara sinn vanagang. Fórum á frostrósatónleika á laugardaginn og var það alveg æðislegt,nánast flaug þaðan út sökum gæsahúðar!!! Vona bara að þær komi aftur á næsta ári því ég er strax farin að hlakka til:)
Er að fara á Vopnafjörð á morgun í laufabrauðs og flatkökubakstur, ætla einni í klippingu og litun, er komin með ansi mikla rót!!! Ekki fallegt!

Jæja hef nú ekki mikið að skrifa hér þessa dagana, hafið það sem best og ég  óska ykkur öllum gleðilegra jóla!

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 21:04:33 / karen

ji bara tvo daga í röð!!

Já mín bara mætt aftur, alveg að missa mig í þessu bloggi!!

En ég hef fréttir að færa! Veskið mitt er fundið! já lán í óláni það er nú ekki svo oft sem það hendir mig, þannig að ég bara varð að tilkynna þetta:haha:

Rigningin sem var búið að spá hér síðustu vikuna er nú loks farin að láta sjá sig. Hef ekki þorað að hengja út vegna leiðinlegrar veðurspár....en ég hefði getað þurrkað allan fataskápinn minn í vikunni ef mig hefði langað, þoli ekki að geta ekki stólað aðeins á veðurspá, en svona er þetta nú bara.

Grilluðum áðan lambakjötið góða og það er alltaf jafn ljúffengt, annars ætti ég nú helst ekki að vera að tala um mat því ég steig á vigtina í gær og fór í þunglyndi!!! já síðan í september (þegar ég byrjaði að vinna á leikskólanum) þá hafa hlaðist utan á mig aðeins 10 kíló!!!!!!!!!!
ojbarasta!! já nú verður bara farið út að labba Takk!!

Já já en nóg um fitutal.  Er að fara á eftir til að láta sjæna á mér augabrúnirnar, maður verður nú að reyna að halda sér smá fínum, allaveg einhversstaðar8|

Jæja folks segji þetta gott...........

Endilega skrifa í comment er forvitin hver kíkir inn:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 21:00:18 / karen

já á eftir mars kemur júní......er þaggi?

Hæ hæ.

Ótrúlegt finnst mér að fólk sé ennþá að reka hér inn nefið.......ég myndi kalla þetta þolinmæði á háu stigi!!   En já á öllum þessum tíma hlýtur eitthvað margt og mikið að hafa gerst hjá mér.  Við fjölskyldan fórum til Noregs í rúman hálfan mánuð,og var það alveg rosalega fínt. Lentum í geggjuðu veðri, það var 25-30 (í forsælu)  gráður allan tíman, fengum hálfan rigningardag, en reyndar var þetta svolítið heitt fyrir mína......sat bara voða mikið í skugganum....mér verður bara óglatt í svona hita!! Ég náði að afreka það að glata töskunni minni með veskinu og öllum kortunum mínum og símanum, sem þýðir það að ég glataði öllum símanúmerum, þannig að elsku fólk endilega sendið mér þá sms svo ég geti sett númerin inn aftur:)
Kristján Breki og Sindri Snær voru alsælir í ferðinni,þrátt fyrir miklar hrakfarir (klemmdir puttar og mikið af sárum og marblettum) aðalfatnaðurinn hjá þeim var bleyja hjá þeim yngri og naríurnar hjá hinum og annað slagið smá niðurkæling með garðslöngunni:)
Fórum eina helgi upp til svíþjóðar og eyddum þar tímanum í sumarbústað með systur hans Sölva og hennar fjölskyldu. Þetta var nú bara geggjaður bústaður, ég væri ósköp hamingjusöm ef húsið mitt væri svona flott, þannig að gamli góði bústaðafílingurinn var svosem ekki til staðar, en þetta var alveg frábært allt saman.

Svo er maður farin að telja niður fyrir sumarfrí! Á aðeins 11 vinnudaga eftir (ein nýkomin úr fríi og ´bíður eftir því næsta) semsagt fer í frí 11.júlí. En við munum eyða að mestu tímanum í sveitinni á Vopnafirði í vinnu í sveitinni,og ég hlakka mikið til, þar finnst mér lang best að vera:) Þannig að ef einhver ætlar að vera svo elskulegur að heimsækja okkur í sumar þá verðum við á flakki á milli Fásk og Vopna:)

En kæra fólk sem koma hér inn, eigiði gleðilegt sumar, veit ekki hvað ég verð dugleg að skrifa hér í sumar en aldrei að vita nema ég lumi á einhverju skemmtilegu til að segja frá.
Kíkið endilega á heimasíðuna hans Kristjáns Breka og kvittið í gestabókina, ég er örlítið duglegri þar....ekki mikið samt:)

En þangað til næst.........


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 00:51:55 / karen

Ég fer í fríið, ég fer í fíið..dudururu.....

hæ hæ mín bara mætt aftur:)
já með bros á vör. Sölvi fékk frí um páskana og Sindri Snær að koma til okkar þannig að við förum í páskafrí!!!!!  Er bara ánægð með það:) við förum á vopnafjörð sennilega á föstudaginn þannig að það þýðir ekkert að heimsækja mig þar sem ég verð ekki heima;)

En fórum í dag í egilsstaði og þar var ég nú bara nokkuð dugleg að eyða peningum..... keypti mér smá föt, og páskaskraut afmælisgjöf og sundskýlu á Kristján Breka sem er bara lítil og sæt:o
Fórum líka til Maríu og Stebba(loksins) og ég þurfti nottla að gera smá gloríu í dag!
Við María vorum semsagt á búðarrápi og ég var að keyra, og reykja í leiðinni. En allavega þá dettur glóðin af rettunni og í klofið á mér í sætið...........það var uppi fótur og fit....ég nánast stökk út úr bílnum á ferð og var á gatnamótum í þokkabót ( fyrir ykkur sem þekkja egilsstaði þá var ég á gatnamótunum hjá nilsen) og þurfti semsagt að stoppa þar og stökkva út úr bílnum í þvílíku hláturskasti:haha: og það voru fullt af bílum fyrir aftan mig og hafa örugglega látið vel valin orð falla um það hverslags bölvaður bjáni ég væri að bara stoppa þarna og fara út úr bílnum í þokkabót...... en þetta var bara fyndið, er eiginlega enn að hlæja að þessu:)

En já þetta var mjög góður dagur og hef ég notið kvöldsins með svövu vinkonum og smá hvítvín:)

Bíð ég góða nótt;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 19:55:16 / karen

löt að skrifa......

hæ hæ allir saman!

Já ég er alveg ótrúlega löt að skrifa hérna og virðist vera erfitt að breyta því:$
En allavega frá því síðast....já já þá voru semsagt jólin:haha: Er bara að vinna á leikskólanum og kem heim og þá þarf víst að fara að huga að því hvað á að vera í matinn svo að hátta stubbinn og sest svo niður við imbann og prjóna......Þetta semsagt geri ég 5 daga vikunnar. Um helgar er þá þveginn þvottur og húsið þrifið:!:  Mjög breytilegt líf hjá mér..... En reyndar er þetta bara fínt. Fórum nú á vopnafjörð um helgina og það er alltaf jafn yndislegt;) þannig að það var ekkert þrifið þessa helgi;)
Fór þar á árshátíð grunnskólans og það er alltaf jafn gaman, krakkarnir stóðu sig svo frábærlega, fæ alltaf svona spennuhnút í magann þegar ég horfi á þau....finnst eins og ég hafi verið að þessu í gær:)

Kristján Breki er alltaf jafn mikill snúður. Alveg ótrúlega stríðinn snáði(hvaðan skildi hann nú hafa það) Svo eru orðin að bætast hratt við hjá honum, samkjaftar allan daginn þó að maður skilji nú bara 4 hvert orð:haha: Fór með hann um daginn í sunnudagaskólann og þar var verið að syngja og klappa með, og hann klappaði eins og fínn maður svo leit ég e-h á hann og var líka að klappa þá bara allt í einu snérist í honum og hann krosslagði hendur og sagði bara "nei" þá var semsagt bara ekkert gaman lengur, þetta var mjög fyndið:haha:
Svo um daginn þá var ég e-h að reyna að skamma hann sem honum finnst yfirleitt bara fyndið, þá snéri hann sér við og kyssti mig!  Hvernig getur maður staðist það???

Það er brjálað að gera hjá Sölva í vinnunni. Hann er í atvinnumanna námi núna í slökkviliðinu þannig að það eru endalausar æfingar og verkefni, vinna þess á milli. Þannig að ef hann kemur heim þá er það bara til að borða og sofa. En þetta verður búið um páskana....get ekki beðið. Mín ætlaði sko að gera eitthvað skemmtilegt um páskana fara eitthvað og hafa það notó en neeei Sölvi er að vinna alla páskana og fer í frí daginn eftir annan í páskum þegar ég byrja að vinna aftur:(
Þannig að ég verð bara heima um páskana og borða páskaegg, ef einhver vill koma í heimsókn þá er ég við:)

Ég er farin að bíða mjög mikið eftir vorinu, er orðin ansi leið á snjókomu og hláku til skiptis,eins og ég hef haft orð á áður þá vil ég bara annaðhvort hafa snjó eða ekki, ekki alltaf þessar helv.... umhleypingar endalaust!!

Við erum að fara til noregs 23.maí og verðum þangað til 8.júní og ég hlakka voða til þar verðu sennilega bara komið sumar þá:) annsi gott.

jæja þá læt ég þetta gott heita í bili.
Karen kveður....yfir og út!

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 12:55:42 / karen

LÍTIÐ AÐ GERA Í VINNUNNI Í DAG.

Heil og sæl!

GLEÐILEG JÓL allir saman!!!!!

Jesús pétur!! Ég er búin að vera svo ótrúlega dugleg að borða núna um jólin.....og er ég nú yfirleitt annsi dugleg við það sko!humm.... En það eru bara steikur ofaná steikur alla daga,enda held ég að í kvöld ég hafi bara pasta eða e-h þessháttar í matinn í kvöld.

Ég sit núna í vinnunni og þið getið rétt ýmindað ykkur hvað það er gasalega mikið að gera hjá mér! það eru alveg 3 börn á leikskólanum í dag og þau er í hvíld þannig að ég bara bíð eftir að þau vakni. Mér finnst ósköp kjánalegt að það sé opinn leikskólinn þessa daga, ég get ekki gert að því..... en svona er þetta, og verð ég nú sennilega feginn þegar að mánaðarmótum kemur, en þetta er fínt, svosem ekki langur vinnudagur, allt í góðu:)

Jólin voru ósköp ljúf og góð hjá okkur. Fór með familyuna og tengdaforeldra heim í sveitina og eyddum aðfangadegi þar. Og bara með því náði ég nú hneiksla annsi marga:) Bara gaman að því.

Af Kristjáni Breka er allt gott að frétta. Hann er ósköp duglegur við allt sem að hann tekur sér fyrir hendur. Eins og áður þá klifrar hann um allt og labbar aldrei heldur bara hleypur!!! Mikill vinnumaður þar á ferð!

Sindri Snær er kominn til okkar og ætlar að vera yfir áramótin. Hann hefur stækkað alveg svakalega og þroskast mikið, hann er með mér á leikskólanum núna því að Sölvi lenti í sjúkraflutning nr.2 í dag.

Jæja jæja þá segji ég þetta gott í bili.

GLEÐILEGT ÁR MEÐ KÆRRI ÞÖKK FYRIR ALLAR GÓÐAR STUNDIR.


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 22:40:01 / karen

ma bara farinn að blogga á hverjum degi!!!

Dugnaðar forkurinn ég, já bara mætt aftur:)

Varð bara að monta mig pínulítið! Var að koma úr Boot Camp og fór í stöðupróf ef ég get kallað það það. Og eru farnir 9cm! þó að ég hvorki sjái það eða finni fyrir því:lol:   Ég gat ekki gert neina armbeygju á tánum þegar ég byrjaði en núna gat ég 11!!!  Dugleg ha:) svo bætti ég hlaup tímann minn um rúma mínútu!! svo var e-h meira sem ég man ekki alveg hvað var mikið...... En ég er nokkuð sátt við þetta þó að ég hefði nú getað gert betur með því að taka til í matarræðinu og svoleiðis:S En svo er það spurningin hvort maður heldur áfram að fara að hreyfa sig e-h það er auðvitað það eina vitlega en það er svo auðvelt að segja það en að framkvæma hlutina......... T.d ekkert mál að segjast ætla að hætta að reykja á morgun en ég er bara aumingi með hor og slef og hefur ekki tekist það ennþá:(

Ég held að ég hafi sjaldan átt jafn erfiðan vinnudag og í dag! Börnin fóru held ég öll öfugu meginn framúr í morgun..... ég reyndi fyrst að vera voða góð og blíð og tala við þau þangað til ég missti þolinmæðina og var soldið mikið pirruð og reið.....en vitiði hvað þeim var svo slétt sama:frown:  þannig að mig langaði helst að sparka aðeins í afturendann á þeim á leið út!!! En það má víst ekki:lol:

Já nú segji ég þetta gott í bili. Er ennþá mjög forvitin að vita hverjir nenna að droppa hér við ennþá svo endilega gerið vart við ykkur:)

p.s það eru 67 dagar til jóla!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 21:07:32 / karen

langt síðan síðast!!

Sælt veri fólkið.

Loksins hef ég haft mig í að skrifa hérna eitthvað:)  Það er nú bara spurning hvar ég á að byrja eiginlega.......

Ég er byrjuð að vinna á leikskólanum frá 9-16 og líkar mér það bara vel. Hefði samt alveg vilja fá aðeins styttri dag þá helst bara Kristjáns Breka vegna því mér finnst þetta svolítið langur dagur fyrir hann en það er kannski bara vitleysa í mér.  Við erum búin að fara tvisvar með hann norður á Akureyri á spítalann því að hann virtist vera að fá ítrekað þvagfærasýkingu þannig að það þurfti að kanna það með allskonar myndatökum og þess háttar, en ekkert sást svo læknarnir voru eiginlega komin á þá skoðun að þetta hafi verið sýking undir forhúð. Hann fór 4 sinnum á pensilín og græddi þar þá þessa svakalegu sveppasýkingu sem við erum að berjast við núna með AB mjólk! Ég vona bara að við náum fyrir hana sem fyrst því ég veit hversu viðbjóðslegt það er að vera með svona!!  En annars líður honum mjög vel og hann er farinn að labba kappinn og með fullann munn af tönnum:D

Ég er búin að vera í boot camp núna í 6 vikur og það er búið að vera mjög gaman og rosalega erfitt fyrir svona hlunka eins og mig!!! En ég finn mikinn mun á mér í styrkleika og þoli en hef nú svosem ekkert lagt af þó að ég mætti það nú alveg8|                                                     Við fórum í sveitina um þarsíðustu helgi í sláturgerð og þá varð Neró 7 hvolpa faðir, þvílík krútt. Það verður hægt að sjá myndir af þeim á síðunni hans Kristjáns Breka vonandi bráðum ef að ansk..... mynda forritið væri til í að senda myndirna þangað. Ég var semsagt að reyna það áðan en það gekk ekki neitt!! þá varð mín soldið pirruð:frown:

Jæja þá er minn viksubrunnur alveg galtómur.  Ég segjist nú alltaf ætla að vera duglegri að skrifa en ég ætla ekkert að vera að því núna, mér finnst ekkert gaman að segja e-h svona og geta svo bara ekki staðið við það!!!

En verið sæl að sinni!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 21:51:09 / karen

Já já það víst að koma júlí!!

Hæ krúttin mín!

"long time no see" eins og einhver orðaði það:)

Það hefur nú ýmislegt drifið á daga mína síðan síðast. En það skín samt ennþá sól hjá mér:)  Fórum suður um Hvítasunnuhelgina, Sölvi fór á Deep purple tónleika, ég var svo elskuleg að gefa honum miða í afmælisgjöf. Fórum líka með Kristján Breka í nýrnaómskoðun því hann fær alltaf reglulega þvagfærasýkingu, en ekkert kom í ljós þar, svo það þarf að fylgjast vel með honum.

Síðustu viku hef ég eytt á Akureyri. Ég og Kristján Breki vorum með kvef og hósta allan tímann og ég sem ætlaði að vera svo dugleg að fara með hann í sund:( Ég er ennþá að kafna úr hósta en er að fara til læknis á morgun.  En allavega ástæðan fyrir þessari Akureyrarferð var að fara með Ester systir því hún var eiga litla prinsessu, ég semsagt passaði fyrir þau á meðan á fæðingu stóð. Ég get nú ekki trúað því að Kristján Breki hafi nokkurntíman verið svo lítill eins og sú stutta sem kom í heiminn þann 19.júní. Tíminn er svo fljótur að líða og maður gleymir víst annsi fljótt. Bara að pæla í því að hann er að vera árs gamall!!!!

Um þarnæstu helgi förum við svo enn einusinni suður, því að pabbi hans Sölva og hans fjölskylda er öll að koma frá Norge,og það er stefn á ættarmót á Akranes þann 7.júlí.    Lísa ef þú lest þetta blogg þá vonandi verðið þið heima því ég ætla að koma í heimsókn:)

Einu megum við nú ekki gleyma ELSKU AGGI OG BIRNA TIL HAMINGJU MEÐ LITLA KÚTINN YKKAR!!!!

Fékk hringingu í dag frá hjúkrunarheimilinu hér á Fásk því ég var búin að ath með vinnu í þvottahúsinu þar, en allavega sú sem hringdi vill endilega fá mig í vinnu bara í umönnun, en ég veit nú ekki hvernig það tekst því þar sem að líður yfir mig útaf engu.........En ég er að spá í að prófa allavega en það verður ekki fyrr en í haust, alltaf gaman að prófa e-h nýtt:)

Jæja þá segji ég þetta gott í bili.  Ég er nú bara nokkuð hreykin af mér sko:)  Eru þið það ekki líka??

Hafið það sem allra best!          


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 11:40:37 / karen

það er komin sól!

sæl og  blessuð öll sömul!

þá er best að gera ofur dugleg og rita hér e-h vel valin orð:)

En ýmislegt hefur drifið á daga mína síðan síðast, ég man ekki einu sinni svo langt aftur þannig að ég reyni nú bara að koma með e-h.

Á mánudaginn þá ætla ég að byrja að vinna. Er komin með vinnu í efnalaug á reyðarfirði, nánar tiltekið hjá honum þvottabirni:)  Verð að vinna frá 8-12 og það verður  nú bara fínt að byrja að vinna aftur, þó svo að ég verði örugglega friðlaus fyrstu dagana að vera ekki með litla stubb með mér, en það venst. 

Kristján Breki er orðin alveg ótrúlega stór. Hann tók alveg ægilegan kipp um daginn og ég þurfti að skipta út næstum öllum fötunum hans í skápnum hans. Svo er maður sko komin með tvær tönnslur, sem gerir það að verkum að ég er að hætta með hann á brjósti því hann BÍTUR!!! Og það er bara vont!  En hann er orðin svo duglegur að borða, um daginn þá borðið hann tæplega hálfa stóra skyrdollu!!!  En ég skil bara ekki hvert allur þessi matur fer því að ekki er nú fitunni fyrir að fara hjá honum, en hann er  nú samt komin með ágætis fyllingu í kinnarnar og smá bumbu og lærin orðin aðeins stærri:) Hann er alltaf hress og kátur strákurinn, lætur aðeins heyra í sér ef hann er syfjaður og svangur.

Ég og Kristján Breki erum að fara suður 15.feb í skírn hjá litlu frænku okkar. Svo ætlum við að fara á Selfoss og vera þar í nokkra daga hjá Guðný og Didda.

Nú er stubbur að vakna og ég hef þetta ekki lengra að sinni.

Endilega skrifið í comment eða gestabók, ég er svo forvitinn að sjá hverjir kíkja  við:)

Hafið það sem best!


» 19 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 14:22:38 / karen

Minning um Jón Ævar Ármannsson

Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund.  Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund.

 

Margs er að minnast, margt er hér að þakka.  Guði sé lof fyrir liðna tíð.  Margs er að minnast margs er að sakna.  Guð þerri tregarárin stríð.

 

Far þú í friði, friður Guðs þig blessi,  hafðu þökk fyrir allt og allt.  Gekkst þú með Guði,  Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.

 

Grátnir til grafar, göngum vér nú héðan, fylgjum´þér, vinur.  Far vel á braut, glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut.

sb.1886 - V.Briem 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:01:29 / karen

Jólakveðja.

Kæru vinir, ættingjar og þeir sem skoða þessa síðu.

Sendi ykkur hugheilar jóla og nýárskveðjur með kærri þökk fyrir liði ár.  Sjáumst og heyrumst vonandi sem flest á nýju ári.

Kær jólakveðja

Karen og fjölskylda


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 17:59:47 / karen

Vantar fylgdar manneskju!

Er einhver að fljúga suður frá egilsstöðum annan í jólum??? ef svo er þá er einn gutti sem vantar fylgdarmann. Viljiði láta mig vita:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 15:08:02 / karen

oj pjakk flugfélag íslands!!!

Heil og sæl.

Já ég segji bara oj pjakk núna!!!   Var semsagt að koma úr henni reykjavíkinni og fékk alveg upp í kok í bili.....allavega við skulum orða það þannig að það var alveg yndislegt að koma heim:)

Þar sem ég er alltaf jafn rosalega heppin þá ætla ég að segja ykkur eina sögu.  Ég og öll mín fjölskylda áttum að mæta í flug kl:15:30. Þegar ég ætla að fara að leggja af stað út á flugvöll þá kemur sms sem segir:"mæting í flug kl: 18:30 flogið verður með þotu til egilsstaða kl:19:30." Ok fínt....en takiði eftir því að það er klukkutíma bið í staðinn fyrir hálftíma og fannst mér þetta grunsamlegt nokk.  Ég mæti á flugvöllinn og stóð í ca. 20 mínútur í biðröð til að tékka okkur inn, loksins þegar það tókst fæ ég blauta tusku í andlitið.  Það á að fara með RÚTU til KEFLAVÍKUR og fljúga þaðan!! Þá vottaði fyrir örlitlum pirringi en svo kom meiri pirringur rútan átti ekki að fara af stað fyrr en 19:30.   Jæja loksins komust við í helv.... rútuna og ætluðum nú aldrei að leggja af stað, en það koma að því, til keflavíkur var haldið.  Svo þegar þangað var komið þá bara stoppaði rútan og bílstjórinn sagði að fólk gæti farið út að reykja(ég var tóbakslaus) því það yrði e-h bið. En aldrei fengum við að vita neitt hvort við ættum að sitja þarna í hálftíma eða 3 klukkutíma, vegna þess að þotan var ekki komin!!!!:whut:   Jæja svo skyndilega tilkynnti bílstjórinn okkur það að við þyrftum að fara inn í Leifsstöð, þegar þangað var komið var ekki hræða þar, svo við stóðum þarna  eins og bjánar og vissum ekkert hvert við áttum að fara. Svo eftir ca. klukkutíma var okkur sagt að fara upp, þá þurftum við að labba í gegnum alla stöðina og langt inn í ranann og þar loksins út í þotu!!!  Við vorum semsagt lent á egilsstöðum um miðnætti. Ég hef ákveðið það að senda e-h vel valinn orð til flugfelags íslands, þeir voru bara heppnir að ég náði ekki í rassgatið á þeim í gær!!!!!

  En annars heppnaðist þessi reykjavíkurferð fínt og gummi og stína takk kærlega fyrir okkur það var voða gott að geta verið hjá ykkur:)

En vonandi róar þetta ykkur aðeins elskurnar og ég skal reyna að vera duglegri að skrifa...en lofa engu:)

Adios!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 18:51:12 / karen

Helduru að þú farir að hugsa núna??!!!

Við erum ekki ódauðleg..

Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins. Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl. Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að “negla” þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar.

Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar.

Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina. Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín? Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir?

Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur? Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var “kúlið” alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.

Höf. Garðar Örn Hinriksson

Ef þetta fær fólk ekki til að hugsa þá veit ég ekki hvað gerir það..

Ekki hugsa Þetta kemur ekki fyrir mig.. og deyja úr heimsku!


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 47149
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan